MemorTil baka í appið

Persónuverndarstefna

Uppfært 21. október 2026

1. Inngangur

Memor er áskriftarsíða fyrir fjölskyldur sem inniheldur sameiginlegt dagatal, verkefnalista, innkaupalista, uppskriftir og matseðil, ásamt sjónrænu skipulagi og dagskrá fyrir börn, stjörnukerfi með verðlaunum, gjafalistum, yfirliti yfir eyðslu heimilisins og yfirliti yfir matvæli og vörur sem eru til á heimilinu. Memor er vefapp sem keyrir í vafra.

Þessi persónuverndarstefna útskýrir hvaða persónuupplýsingar við vinnum þegar þú notar Memor, í hvaða tilgangi, á hvaða lagagrundvelli, hvernig við verndum upplýsingarnar og hver réttindi þín eru samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Notendur Memor eru fullorðnir einstaklingar sem kaupa áskrift að þjónustunni. Börn nota barnahluta þjónustunnar undir umsjón og á ábyrgð þess foreldris eða forráðamanns sem stofnað hefur aðganginn.

2. Ábyrgðaraðili

Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga samkvæmt þessari stefnu er:

Berglind Björk Arnfinnsdóttir Nielsen

Kt. 240398-3549

Miðstræti 24, 740 Neskaupsstað

Netfang: info@memor.my

3. Hvaða persónuupplýsingar vinnum við

3.1 Upplýsingar tengdar aðgangi þínum

Netfang

Lykilorð, dulkóðað og geymt í gagnagrunni Memor

Tímastimpill samþykkis fyrir skilmálum og persónuverndarstefnu

Áskriftartegund og gildistími áskriftar, þ.m.t. upplýsingar um kortagreiðslur hjá Teya (sjá kafla 5) og dagsetning síðustu greiðslu sem við höfum staðfest. Dagsetningin er notuð til að halda utan um áskriftina og tekjur þjónustunnar, en upplýsingar um greiðslukort fara aldrei um Memor.

3.2 Efni sem þú skráir inn í þjónustuna

Dagatalsviðburðir: titlar, tímasetningar, staðsetning og athugasemdir

Verkefnalistar og endurtekin heimilisverk

Innkaupalistar, og eldri innkaupalistar sem vistast þegar listi er tæmdur eða keypt hreinsað (allt að 40)

Uppskriftir og vikumatseðill

Nafn þitt og fjölskyldumeðlima

Myndir

Gjafalistar: nöfn þeirra sem gjöf er ætluð, gjafahugmyndir, vefslóðir, verð, myndir, tilefni gjafar (t.d. jól, afmæli eða tilefni sem þú skráir sjálf/ur) og staða gjafar (hugmynd, keypt, pakkað eða gefið). Afmæli sem birtast sem tilefni eru sótt úr þínu eigin dagatali í Memor.

Fjárhagur fyrir gjafir: upphæð sem þú settir fyrir hvern viðtakanda meðan sá eiginleiki var í boði. Hann birtist ekki lengur í appinu en er geymdur með gjafalistanum þar til honum er eytt

Lykilorð fyrir gjafalista, ef þú velur að læsa þeim, geymt sem óafturkræft tætigildi (hash) en ekki sem lykilorðið sjálft

Skógjafir: hvað kemur í skóinn hjá hverju barni þá þrettán daga sem jólasveinarnir koma

Eyðsluskráning: upphæðir, dagsetning, valfrjáls skýring um hvar keypt var, og mánaðarlegt markmið sem þú setur þér

Búrið: heiti, fjöldi, flokkur og best-fyrir-dagsetningar þeirra vara sem þú skráir, hvenær þær voru skráðar, myndir af vörum og strikamerki þeirra, og heiti flokka sem þú býrð til

Lykilorð fyrir læstar vörur í Búrinu, geymt sem óafturkræft tætigildi (hash) en ekki sem lykilorðið sjálft

„Ég gerði þetta“: heiti verka sem þú skráir og dagsetningar þess þegar þau voru unnin, ásamt tillögum um endurtekningu sem appið reiknar út frá þeim dagsetningum

Vefslóðir sem þú vistar með uppskriftum, t.d. á vefsíðu eða myndband á TikTok eða Instagram

3.3. Innlestur skráa

Í tilteknum eiginleikum þjónustunnar getur þú hlaðið inn skrám, svo sem:

Allur lestur og úrvinnsla þessara skráa fer fram í vafra þínum sjálfum. Skrárnar eru aldrei sendar til okkar né til þriðja aðila. Aðeins þær færslur sem þú samþykkir sjálf/ur að vista eru sendar í gagnagrunninn og verða þar með hluti af þeim gögnum sem lýst er í þessum kafla.

3.3a Uppskriftir sóttar af hlekk

Þegar þú límir inn hlekk til að sækja uppskrift er hlekkurinn sendur til bakenda Memor, sem sækir síðuna eða færsluna og les úr henni titil, texta og mynd. Hjá TikTok og Instagram er notuð sú opinbera útgáfa færslunnar sem hver sem er getur skoðað án innskráningar. Síðan sem hlekkurinn vísar á sér fyrirspurnina koma frá netþjóni Memor, ekki frá þér, og engar upplýsingar um þig eða aðganginn þinn eru sendar með henni.

Það sem sótt er birtist þér til yfirferðar og er aðeins vistað ef þú vistar uppskriftina. Mynd sem fylgir sóttri uppskrift getur verið vistuð sem vefslóð á netþjón upprunasíðunnar; þegar hún birtist í appinu sækir vafrinn þinn hana þá beint þaðan, eins og þegar mynd á vefsíðu er skoðuð.

3.3a2 Strikamerki í Búrinu

Þegar þú tekur mynd af vöru í Búrinu les appið strikamerkið í tækinu sjálfu. Ef varan er ekki þekkt er aðeins strikamerkið, talan sjálf, sent til Open Food Facts, opins vörugagnagrunns, til að finna heiti vörunnar. Engar aðrar upplýsingar um þig fylgja með, en fyrirspurnin kemur beint frá tækinu þínu, svo Open Food Facts sér IP-tölu þess eins og hjá hverri vefsíðu. Myndin sem þú tekur er minnkuð og vistuð með vörunni í Memor en er ekki send annað. Finnist varan hjá Open Food Facts getur mynd af henni þaðan birst í Búrinu, og sækir tækið hana þá beint frá Open Food Facts.

Þegar þú lest inn pöntun af skjáskoti er textinn lesinn í tækinu sjálfu og skjáskotið er hvorki vistað né sent annað. Aðeins vörurnar sem þú staðfestir eru vistaðar í Búrinu.

3.3a3 Matseðill sem mynd

Þegar þú vistar matseðilinn sem mynd er myndin búin til í tækinu sjálfu og hvorki vistuð í Memor né send okkur. Það sem þú gerir svo við myndina, t.d. að deila henni, er á þínu valdi.

3.3a4 Matseðill deilt með hlekk

Þegar þú velur „Deila með öðrum í Memor“ eru dagarnir sem þú valdir, heiti réttanna, uppskriftir þeirra og myndir vistuð hjá Memor undir hlekk með löngum, tilviljanakenndum kóða. Hver sem hefur hlekkinn getur skoðað það efni án þess að skrá sig inn og sett það inn á sinn eigin aðgang. Engar aðrar upplýsingar úr aðganginum þínum fylgja, hvorki netfang, nöfn heimilisfólks né annað efni.

Myndir í Memor, þar á meðal myndir réttanna sem fylgja hlekknum, eru geymdar undir vefslóð með tilviljanakenndum kóða. Sá sem hefur slóðina getur opnað myndina. Slóðirnar eru ekki birtar opinberlega og ekki er hægt að giska á þær.

Deilt efni er geymt þar til þú eyðir aðganginum þínum, og þá er því eytt með öðrum gögnum. Viljir þú að hlekkur hætti að virka fyrr getur þú haft samband við okkur.

3.3a5 Boð til vina

Ef þú notar boðshlekk geymum við kóða hlekksins með heimilinu þínu, ásamt því hvenær þú samþykktir skilmálana um boð. Þegar einhver stofnar aðgang í gegnum hlekkinn skráum við með nýja aðganginum hvaða heimili bauð og hvenær, hvort viðkomandi hefur keypt áskrift og hvenær dagar voru veittir fyrir boðið.

Sá sem bauð sér aðeins fjölda skráninga og keyptra áskrifta, en hvorki nöfn né netföng þeirra sem skráðu sig. Rekstraraðili sér tenginguna milli aðganganna til að geta veitt dagana og komið í veg fyrir misnotkun.

Kóðinn úr hlekknum er geymdur í vafranum (localStorage) frá því hlekkurinn er opnaður þar til aðgangur er stofnaður, svo boðið glatist ekki á leiðinni. Upplýsingum um boðið er eytt með aðganginum sem þær tilheyra. Sé aðgangi þess sem bauð eytt er tengingin fjarlægð af aðgangi þess sem var boðið.

3.3b Innkaupalisti deilt með hlekk

Þú getur valið að deila einum innkaupalista með hlekk. Hver sem hefur hlekkinn getur þá séð innihald þess lista, hakað við vörur og bætt við vörum, án þess að skrá sig inn. Hlekkurinn veitir ekki aðgang að neinu öðru efni í aðganginum þínum. Þú getur hætt að deila listanum hvenær sem er, og hlekkurinn hættir þá að virka. Farðu varlega með hverjum þú deilir hlekknum, því við getum ekki stjórnað því hvert hann berst eftir að þú hefur sent hann.

3.3c Fleiri aðgangar á sama heimili

Eigandi heimilis getur boðið öðrum að skrá sig inn á heimilið. Þá vinnum við netfang þess sem boðið er, hver bauð og hvenær, og sendum boðið í tölvupósti ásamt boðskóða. Boð sem er ekki notað rennur út eftir 7 daga og er þá ekki lengur virkt. Þegar boðið er þegið skráum við að aðgangurinn tilheyri heimilinu.

Allir á heimilinu sjá sömu gögn heimilisins. Eigandinn sér netföng þeirra sem eru á heimilinu, og þeir sjá netfang eigandans og hvers annars. Gögn sem voru á aðgangi einhvers áður en hann skráði sig í heimili verða ekki sýnileg á heimilinu og er ekki eytt við það.

Gjafir og viðburðir sem merktir eru „Aðeins ég sé þetta“ eru geymdir sér á aðgangi þess sem skráði þá, ekki með gögnum heimilisins. Aðrir á heimilinu fá þau aldrei send og geta ekki séð þau. Þeim er eytt þegar aðganginum er eytt.

3.3d Dagatal lesið af mynd

Þegar þú velur „Lesa inn af mynd“ í dagatalinu, t.d. fyrir mánaðarskipulag frá leikskóla, er myndin minnkuð í tækinu og send í gegnum bakenda Memor til Anthropic, sem les hana með gervigreindinni Claude og skilar lista yfir dagsetningar og viðburði. Memor geymir ekki myndina sjálfa, aðeins þá viðburði sem þú velur að setja í dagatalið. Við biðjum Claude sérstaklega um að sleppa nöfnum og afmælum annarra barna sem kunna að vera á myndinni. Anthropic vinnur myndina samkvæmt skilmálum sínum fyrir fyrirtæki og notar hana ekki til að þjálfa gervigreind sína. Börnin nota ekki þennan eiginleika; hann er aðeins í þeim hluta appsins sem foreldrar nota. Við teljum fjölda lestra á hvert heimili í mánuði til að halda kostnaði í skefjum.

3.3e Tengd dagatöl

Þú getur tengt annað dagatal við Memor, t.d. frá Google, Apple eða Outlook, með því að líma inn áskriftarhlekk þess (iCal, .ics eða webcal). Slíkur hlekkur veitir lesaðgang að dagatalinu og er því geymdur dulkóðaður í gagnagrunni Memor. Með honum geymum við heiti sem þú gefur dagatalinu, hvaða heimilismeðlimum það er merkt, hvort aðrir á heimilinu sjá það og hvenær það var tengt. Hlekkurinn sjálfur birtist aldrei aftur í appinu eftir að hann hefur verið vistaður. Áður en dagatal er tengt birtist þér samantekt á þessu og þú staðfestir að þú skiljir hana, og við skráum hvenær það var gert.

Bakendi Memor sækir viðburði af hlekknum þegar appið biður um þá, að jafnaði ekki oftar en á tíu mínútna fresti meðan appið er opið. Sótt er tímabil frá rúmum mánuði aftur í tímann til rúms árs fram í tímann. Viðburðirnir eru ekki vistaðir í gagnagrunni Memor. Þeir eru geymdir í minni bakendans í allt að fimm mínútur, og afrit af þeim er geymt í tækinu þínu svo þeir birtist strax næst þegar appið er opnað (sjá kafla 3.5). Dagatalsþjónustan sér að fyrirspurnin kemur frá netþjóni Memor, ekki frá þér, og engar upplýsingar um þig eða aðganginn þinn fylgja henni.

Nema þú veljir „Bara ég sé þetta dagatal“ birtast viðburðirnir öllum á heimilinu. Ef tengt dagatal inniheldur upplýsingar um aðra, t.d. vinnufélaga, berð þú ábyrgð á að hafa heimild til að birta þær á heimilinu. Þú getur aftengt dagatal hvenær sem er og er hlekknum þá eytt. Hlekkjum er einnig eytt þegar aðganginum er eytt, hvort sem þú gerir það sjálf/ur eða það gerist sjálfkrafa eftir að áskrift rennur út.

3.4 Upplýsingar um börn

Þar sem Memor er ætlað fjölskyldum vinnum við einnig eftirfarandi upplýsingar um börn, sem foreldri eða forráðamaður skráir inn:

Nöfn barna

Myndir af börnum

Sjónrænar dagsrútínur og verkefni barnsins, ásamt stjörnusöfnun og myndum sem þú setur á verkefni

Myndasafn heimilisins: myndir sem þú bætir við sjónræna skipulagið eru geymdar svo hægt sé að nota þær aftur. Þú getur tekið þær úr safninu hvenær sem er.

Albúm í sjónræna skipulaginu: heiti albúma sem þú býrð til og hvaða spjöld og myndir eru í hverju þeirra

Óskalisti barnsins: óskir sem barnið eða foreldri skrifar í Börn-hlutanum, ásamt myndum sem teknar eða valdar eru með þeim. Myndirnar eru minnkaðar í tækinu áður en þær eru vistaðar. Foreldri getur fært ósk yfir á gjafalistann, og verður hún þá hluti af gjafalistanum sem lýst er í kafla 3.2. Gjafalistinn er aldrei sýnilegur í Börn-hlutanum, og barnið sér ekki hvort ósk hafi verið sett á hann.

PIN-númer barnalæsingar (dulkóðað)

Foreldri eða forráðamaður sem skráir barn inn í Memor ber ábyrgð á að hafa til þess heimild.

3.4a Aðgangar fyrir unglinga

Þegar eigandi heimilis stofnar aðgang fyrir ungling vinnum við notandanafn sem foreldrið velur, lykilorð (dulkóðað), hvaða hlutum heimilisins unglingnum er deilt, hver stofnaði aðganginn og hvenær foreldrið staðfesti að það væri forsjáraðili. Við biðjum ekki um netfang, kennitölu eða aldur unglingsins.

Unglingurinn fær aðeins send gögn úr þeim hlutum sem foreldrið valdi, og breytingar hans vistast aðeins þar. Gjafalistar, eyðsla, Búrið, áskrift og stillingar heimilisins eru aldrei sendar í tæki unglingsins. Unglingar fá engan tölvupóst frá Memor, ekkert markaðsefni og engan boðshlekk.

Aðgangurinn og upplýsingar um hann eru eyddar þegar foreldrið eyðir honum, þegar heimilinu er eytt eða þegar gögnum heimilisins er eytt eftir að áskrift rennur út (sjá kafla 8). Það sem unglingurinn hefur skráð í sameiginleg gögn heimilisins, t.d. viðburð í dagatalinu, verður áfram hluti af gögnum heimilisins.

3.5 Tæknilegar upplýsingar

Innskráningarteikn (auðkennistoken), geymt í localStorage í vafra þínum

Afrit af gögnum heimilisins, án mynda, og af viðburðum úr tengdum dagatölum, geymt í localStorage í tækinu svo appið opnist hratt. Afritinu er eytt við útskráningu.

Stillingar sem gilda aðeins fyrir tækið, svo sem tungumál, hvort heimaskjárinn sýni dag eða viku og hvort bílahamur sé á (fyrir skjái í bílum sem skrolla ekki með fingri)

Þjónaskrár hýsingaraðila: IP-tala og tímastimpill

Memor notar engar vafrakökur til rakningar, engin greiningartól þriðja aðila, birtir engar auglýsingar og selur engin gögn.

3.6 Viðkvæmar upplýsingar sem þú getur skráð að eigin frumkvæði

Memor er ekki hannað til að vinna viðkvæmar persónuupplýsingar sérstaklega. Öll textasvæði í þjónustunni eru þó frjáls og því getur þú, að eigin frumkvæði, skráð upplýsingar sem teljast viðkvæmar samkvæmt persónuverndarlögum, til dæmis heilsutengdar upplýsingar í dagatal eða dagsrútínu.

Kjósir þú að skrá slíkar upplýsingar er vinnslan byggð á samþykki þínu til þeirrar tilteknu vinnslu. Skrái foreldri eða forráðamaður viðkvæmar upplýsingar um barn er það foreldrið eða forráðamaðurinn sem veitir samþykki fyrir hönd barnsins.

Kerfið greinir ekki á milli viðkvæmra upplýsinga og annars efnis sem þú skráir, og því gilda engar sérstakar tæknilegar viðbótarráðstafanir um þennan gagnaflokk umfram þær almennu öryggisráðstafanir sem lýst er í kafla 7. Viðkvæmar upplýsingar sem þú skráir eru ekki greindar, notaðar til ályktana eða unnar frekar af okkar hálfu, þær eru einungis vistaðar og birtar þér og öðrum notendum heimilisins, með sama hætti og annað efni sem þú skráir í þjónustuna.

3.7 Upplýsingar um aðra einstaklinga

Skráir þú upplýsingar um fólk utan heimilisins — til dæmis nafn þess sem gjöf er ætluð í gjafalista — vinnum við þær eingöngu til að birta þér þær aftur innan þíns eigin aðgangs. Slíkar upplýsingar eru hvorki greindar, tengdar við aðra aðganga né notaðar í öðrum tilgangi. Notkun einstaklings á þjónustunni í eigin þágu og í þágu fjölskyldu sinnar fellur að jafnaði undir undanþágu vegna einkanota, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 90/2018, en sem ábyrgðaraðili þjónustunnar tryggjum við að þessar upplýsingar njóti sömu verndar og annað efni sem þú skráir.

3.8 Eyðsluskráning

Eyðsluyfirlitið byggir eingöngu á tölum sem þú slærð sjálf/ur inn. Memor tengist ekki banka, greiðslukorti eða öðru fjármálakerfi, sækir engar færslur sjálfkrafa og hefur enga aðra vitneskju um fjármál þín. Tölurnar eru vistaðar með öðrum gögnum heimilisins og birtast þér og öðrum notendum þess.

3.9 Skilyrði fyrir stofnun aðgangs

Til að stofna aðgang að Memor þarf notandi að vera fullorðinn. Með því að stofna aðgang staðfestir notandi að hann sé 18 ára eða eldri, eða foreldri/forráðamaður ólögráða einstaklings og samþykki notkun hans á þjónustunni undir sinni umsjón.

4. Til hvers notum við upplýsingarnar og á hvaða lagagrundvelli

Við vinnum persónuupplýsingar þínar í eftirfarandi tilgangi:

Tilgangur vinnsluLagagrundvöllur
Að stofna og reka aðgang þinn og veita þjónustuna sem þú hefur keyptEfndir samnings
Að taka við og staðfesta greiðslu og halda utan um áskriftEfndir samnings
Að halda yfirlit yfir greiðslur og tekjur þjónustunnar, byggt á áskriftartegund og dagsetningu greiðsluLagaskylda (bókhald) og lögmætir hagsmunir
Að geyma og birta efni sem þú sjálf/ur skráir (dagatal, matseðill, uppskriftir, innkaupalisti o.fl.)Efndir samnings
Að geyma og birta gjafalista, þar á meðal nöfn þeirra sem gjöf er ætluð, tilefni, stöðu og fjárhag, og að læsa þeim með lykilorði ef þú velur þaðEfndir samnings
Að geyma óskalista barna og gera foreldri kleift að færa óskir yfir á gjafalistannEfndir samnings
Að gera fleiri aðgöngum kleift að nota sama heimili og að senda boð á heimili í tölvupóstiEfndir samnings
Að geyma og birta eyðsluskráningu og mánaðarlegt markmið sem þú setur þérEfndir samnings
Að setja tilbúið efni inn í dagatalið þitt þegar þú kveikir á viðbótEfndir samnings
Að geyma og birta gögn um börn sem foreldri/forráðamaður skráir (nöfn, myndir, dagsrútínur, stjörnusöfnun o.fl.)Efndir samnings
Að tryggja öryggi og eðlilegan rekstur aðgangs, gagna og þjónustunnarLögmætir hagsmunir
Að senda staðfestingar um kaup, greiðslu og stofnun aðgangsEfndir samnings
Að gera notanda kleift að endurstilla lykilorð og endurheimta aðgangEfndir samnings
Að senda tilkynningu um að áskriftartímabil sé að renna út.Lögmætir hagsmunir
Að láta rekstraraðila vita með tölvupósti þegar nýr aðgangur er stofnaður og staðfestur (netfang notanda)Lögmætir hagsmunir
Að sækja uppskrift af hlekk sem þú límir innEfndir samnings
Að geyma hlekki á dagatöl sem þú tengir og sækja og birta viðburði úr þeimEfndir samnings
Að birta deildan innkaupalista þeim sem hafa hlekkinnEfndir samnings
Að geyma og birta matseðil og uppskriftir sem þú deilir með hlekkEfndir samnings
Að halda utan um boð til vina, lengri reynslutíma þess sem er boðið og daga sem sá sem bauð færEfndir samnings
Að koma í veg fyrir misnotkun á boðum, t.d. með gervireikningumLögmætir hagsmunir
Að veita unglingi aðgang að þeim hlutum heimilisins sem foreldri velur, samkvæmt samningi við foreldriðEfndir samnings (við foreldri) og lögmætir hagsmunir
Að svara fyrirspurnum og veita þjónustuaðstoð, þ.m.t. fyrirspurnum áður en samningur er gerðurEfndir samnings
Að staðfesta auðkenni þitt og afgreiða beiðnir um réttindi þínLagaskylda
Bókhald og skil vegna söluLagaskylda
Að tilkynna öryggisbrest til yfirvalda og hlutaðeigandi eftir því sem lög krefjastLagaskylda
Að setja fram, fylgja eftir eða verja réttarkröfurLögmætir hagsmunir
Viðkvæmar upplýsingar sem þú skráir sjálfviljug (t.d. heilsutengt) í frjálsan textaSamþykki, efndir samnings

5. Hverjir fá aðgang að persónuupplýsingum þínum

Til að reka Memor notum við valda þjónustuaðila. Sumir þeirra eru vinnsluaðilar sem vinna gögn eftir okkar fyrirmælum og samkvæmt vinnslusamningi, sbr. lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga; aðrir eru sjálfstæðir ábyrgðaraðilar fyrir sinn hluta vinnslunnar.

ÞjónustaHlutverkStaðsetning gagnaStaða
Google (Firebase Realtime Database)Geymsla allra notendagagnaeurope-west1 (Belgía)Vinnsluaðili
ResendSending sjálfvirkra tölvupóstaBandaríkinVinnsluaðili
AnthropicLestur dagatalsmynda með gervigreind (Claude), aðeins þegar þú velur „Lesa inn af mynd“BandaríkinVinnsluaðili
NetlifyHýsing vefskráa, þjónaskrár (IP-tölur)Bandaríkin, CDN-þjónar víðaVinnsluaðili
Teya Iceland hf.Greiðslumiðlun: móttaka kortaupplýsinga, greiðslustaðfestingSkv. skilmálum TeyaSjálfstæður ábyrgðaraðili

Um greiðslur

Þegar þú kaupir áskrift ertu send/ur á örugga greiðslusíðu Teya. Kortaupplýsingar eru slegnar inn beint hjá Teya, berast aldrei til Memor og eru hvergi geymdar hjá okkur. Til að búa til greiðsluna sendir Memor Teya upphæð, heiti áskriftarleiðar, tilvísunarnúmer og netfangið þitt, svo það sé útfyllt á greiðslusíðunni og Teya geti sent þér kvittun.

Þegar greiðslunni er lokið spyr bakendi Memor Teya hvort hún hafi farið í gegn og bætir þá áskriftinni við aðganginn. Við geymum tilvísunarnúmer greiðslunnar, áskriftarleið, upphæð, tímasetningu, stöðu hennar hjá Teya og færslunúmer Teya, vegna bókhalds og til að hægt sé að leysa úr málum ef eitthvað fer úrskeiðis.

Teya vinnur kortaupplýsingar og greiðslutengd gögn sem sjálfstæður ábyrgðaraðili, í samræmi við eigin persónuverndarstefnu og gagnaverndarskilmála.

Google (Firebase), Resend, Netlify og Anthropic starfa sem vinnsluaðilar fyrir Memor samkvæmt stöðluðum vinnslusamningum sem eru sjálfkrafa hluti af þjónustuskilmálum þeirra.

6. Flutningur persónuupplýsinga út fyrir EES

Notendagögn eru að meginstefnu til geymd í gagnagrunni í Belgíu, innan Evrópska efnahagssvæðisins. Bakendi Memor, þar á meðal innskráning og önnur vinnsla sem fer um hann, keyrir hins vegar hjá Netlify, sem er bandarískt félag með netþjóna víða um heim, og því er sú vinnsla ekki bundin við ESB/EES. Netlify hýsir einnig vefskrár Memor með sama hætti. Resend, sem annast sendingu tölvupósta fyrir Memor, er einnig bandarískt félag. Anthropic, sem les dagatalsmyndir fyrir Memor, er líka bandarískt félag.

Framangreint getur falið í sér flutning persónuupplýsinga til Bandaríkjanna eða annarra landa utan EES.

Slíkur flutningur er tryggður með eftirfarandi hætti:

Netlify, Google og Resend eru öll vottuð samkvæmt gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (EU-U.S. Data Privacy Framework), sem framkvæmdastjórn ESB hefur viðurkennt sem fullnægjandi vernd fyrir persónuupplýsingar sem fluttar eru til vottaðra aðila í Bandaríkjunum.

Til vara gilda staðlaðar samningsákvæði ESB (Standard Contractual Clauses) verði vottun einhvers þeirra felld úr gildi eða endurnýist ekki.

7. Hvernig við verndum upplýsingarnar þínar

Innskráning fer fram um bakenda Memor, með undirrituðu setuteikni (session token). Gagnagrunnurinn er lokaður fyrir beinum aðgangi; bakendinn sannreynir setuteiknið í hverri fyrirspurn og afgreiðir eingöngu gögn þess aðgangs sem teiknið tilheyrir.

Öll samskipti milli Memor og netþjóna fara um dulkóðaða tengingu (TLS/HTTPS).

Lykilorð eru dulkóðuð og aldrei geymd í læsilegu formi.

Hlekkir á tengd dagatöl eru dulkóðaðir (AES-256) áður en þeir eru vistaðir, og bakendinn sækir aðeins dagatöl af opinberum netföngum.

Stjórnborð rekstraraðila keyrir í vafra og er varið sérstöku lykilorði sem geymt er hjá hýsingaraðila. Stjórnborðið læsist tímabundið eftir fimm rangar innskráningartilraunir.

Rekstraraðili Memor hefur tæknilegan aðgang að öllum aðgöngum vegna reksturs þjónustunnar og bilanagreiningar.

8. Hversu lengi geymum við upplýsingar

Gögn þín eru varðveitt á meðan áskrift þín er virk. Renni áskrift út án endurnýjunar er gögnunum þínum eytt sjálfkrafa 60 dögum síðar. Þú færð aðvörun í tölvupósti viku áður en að eyðingu kemur. Færslur um sölu og greiðslur eru varðveittar í samræmi við ákvæði bókhaldslaga, óháð þessu.

Þegar gögnum er eytt, hvort sem er vegna þess að þú eyðir aðgangi þínum sjálf/ur eða vegna sjálfvirkrar eyðingar 60 dögum eftir að áskrift rennur út, eru gögnin jafnframt fjarlægð úr öllum geymdum öryggisafritum án tafar. Gögn þín lifa því ekki áfram í afritum eftir að þeim hefur verið eytt úr virkri vinnslu.

9. Réttindi þín

Aðgangur og flutningur: Þú getur sótt öll þín gögn á JSON-formi beint úr vefappinu.

Leiðrétting: Þú getur leiðrétt eða eytt eigin efni hvenær sem er.

Eyðing: Þú getur eytt aðgangi þínum. Við það eyðist aðgangsfærslan og öll gögn þín.

Andmælaréttur: Þú átt rétt á að andmæla vinnslu sem byggist á lögmætum hagsmunum okkar, sbr. töflu í kafla 4.

Afturköllun samþykkis: Hafir þú veitt samþykki fyrir vinnslu, t.d. vegna viðkvæmra upplýsinga sem þú skráir sjálfviljug, átt þú rétt á að afturkalla það hvenær sem er, án þess að það hafi áhrif á lögmæti vinnslu fram að afturkölluninni.

Takmörkun vinnslu: Þú getur í tilteknum tilvikum farið fram á að vinnsla persónuupplýsinga þinna verði takmörkuð.

Kvörtunarréttur: Þú átt rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd, Laugavegi 166, 105 Reykjavík (postur@personuvernd.is), telji þú að vinnsla persónuupplýsinga þinna brjóti í bága við lög.

10. Vafrakökur og staðbundin geymsla

Memor notar localStorage í vafra þínum til að geyma innskráningarteikn, innskráða stöðu, tungumálaval, kóða úr boðshlekk þar til aðgangur er stofnaður, vinnugögn appsins (t.d. tímamæla sem þú settir af stað) og afrit af gögnum heimilisins og viðburðum úr tengdum dagatölum svo appið opnist strax og sýni efnið þitt áður en það sækir nýjustu útgáfuna, svo þú þurfir ekki að skrá þig inn í hvert sinn og til að appið virki rétt milli heimsókna. Afritið hverfur þegar þú skráir þig út eða hreinsar vafragögn. Þessi gögn eru geymd staðbundið í þínum vafra/tæki og eru ekki notuð til rakningar eða markaðssetningar. Memor notar engin greiningar- eða markaðskökur.

11. Breytingar á þessari stefnu

Við kunnum að uppfæra þessa stefnu, til dæmis vegna breytinga á þjónustunni eða lagakrafna. Breytingar sem hafa áhrif á vinnslu sem þegar fer fram eru tilkynntar í appinu með stuttri samantekt og hlekk á stefnuna. Vinnsla sem tengist nýjum, valfrjálsum eiginleika er lýst hér og þú samþykkir hana sérstaklega áður en þú tekur eiginleikann í notkun. Verulegar breytingar, svo sem ný tegund vinnslu eða nýr þriðji aðili, verða einnig tilkynntar með tölvupósti.

Breytingasaga

21. október 2026: Kortagreiðslur hjá Teya staðfestast nú sjálfkrafa. Hvað Memor sendir Teya og geymir um greiðslur (3.1 og 5).

20. október 2026: Aðgangar fyrir unglinga (3.4a og 4).

19. október 2026: Matseðill deilt með hlekk og myndir undir slóð (3.3a4 og 4). Boð til vina (3.3a5 og 4). Bráðabirgðaaðgangur er fimm dagar (5).

3. október 2026: Tengd dagatöl frá Google, Apple, Outlook og öðrum (3.3e, 3.5, 4, 7 og 10). Fjárhagur í gjafalistum birtist ekki lengur (3.2).

30. september 2026: Lestur dagatalsmynda með gervigreind frá Anthropic (3.3d og 6).

30. september 2026: Bætt við fleiri aðgöngum á sama heimili, boðum á heimili og einkagjöfum og einkaviðburðum sem aðeins sá sem skráði sér (3.3c og 4).

29. september 2026: Bætt við óskalista barna og myndum með óskum (3.4), tilefni, stöðu, fjárhag og læsingu gjafalista (3.2), albúmum í sjónræna skipulaginu (3.4), bílaham (3.5) og skráningu á dagsetningu greiðslu (3.1 og 4).

Spurningar? Sendu okkur línu á info@memor.my.